Fara í efni

Tilkynning: Vatnshæðaraukning í Héraðsvötnum

06.03.2026

Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hafa borist upplýsingar frá Veðurstofu Íslands um að vatnshæð aukist í Héraðsvötnum og vatn sé að nálgast þjóðveginn. Krap og klaki er í ánni og spáð hlýindum í dag og úrkomu. Meðfylgjandi myndir voru teknar við bæina Minni- og Stóru-Akra.

Fólk á svæðinu er hvatt til að fylgjast vel með, þá sérstaklega bændur vegna búfjár sem gæti lent í sjálfheldu ef kemur til áframhaldandi vatnavaxta.