Fara í efni

Tilkynning til hunda- og kattaeigenda

12.05.2025

Sveitarfélagið vill vekja athygli á að samkvæmt samþykkt um hunda- og kattahald í sveitarfélaginu Skagafirði ber kattareigendum að taka tillit til fuglalífs á varptíma og eftir atvikum takmarka útiveru þeirra, m.a. að næturlagi. Kettir skulu vera örmerktir og ávallt bera ól um hálsinn. Á ólinni skal vera plata, sem í er grafið skráningarnúmer kattarins.

Ef eigandi eða umráðamaður hunds eða kattar vanrækir skyldur sínar eða brýtur ítrekað gegn ákvæðum samþykktar þessarar eða öðrum reglum sem gilda um hunda- og kattahald getur sveitarstjórn afturkallað leyfi hans til hunda- eða kattahalds.

Biðlað er til kattareigenda að virða reglur þessar og sjá til þess að kettir þeirra komist ekki að ungunum.

Minnt er á að gæludýraeigendum er skylt að skrá hunda og ketti á þéttbýlisstöðum í Skagafirði.

Samþykkt um hunda- og kattahald í Sveitarfélaginu Skagafirði