Fara í efni

Tilkynning til hundaeigenda

26.02.2024

Ert þú til fyrirmyndar? Þarf nágranninn nokkuð að þrífa upp eftir þinn hund? 

Mikið hefur borið á kvörtunum til sveitarfélagsins vegna lausagöngu hunda upp á síðkastið, sérstaklega í Varmahlíð og á Hofsósi.

Hundaeigendur eru vinsamlegast minntir á að lausaganga hunda í þéttbýli Skagafjarðar er með öllu óheimil. Þetta á við alla daga, allt árið.

Óheimilt er með öllu að láta hunda ganga lausa innan marka þéttbýlis nema nytjahunda þegar
þeir eru að störfum og í gæslu eiganda eða umráðamanns. Hundar skulu að öðru leyti ávallt vera
í taumi utanhúss og í fylgd manneskju sem hefur fullt vald yfir þeim. Eiganda eða umráðamanni hunds er alltaf skylt að fjarlægja saur eftir hundinn. 

Hundahald í þéttbýli er leyfisskylt og um það gilda reglur, sem hundaeigendur eiga að kynna sér.

 

hér má sjá SAMÞYKKT UM HUNDA- OG KATTAHALD Í SKAGAFIRÐI