Fara í efni

Tilkynning til gámaeigenda á gámasvæðinu á Sauðárkróki

02.02.2026

Einstaklingar sem eru með gáma á gámasvæðinu á Sauðárkróki eru beðnir um að gera viðeigandi ráðstafanir sem nauðsynlegar eru fyrir 15. febrúar nk. Mánudaginn 16. febrúar koma vélar og tæki á svæðið til að færa gáma í samræmi við nýtt skipulag og því er mikilvægt að eigendur undirbúi gámana fyrir þann tíma.

Eigendur sem eru ekki með gám í tilgreindu stæði skulu tryggja að innanmunir séu fastskorðaðir eða fjarlægðir svo þeir geti ekki valdið skemmdum þegar gámar verða færðir til.

Gámar sem standa í leyfisleysi á svæðinu verður fargað samhliða tilfærslunni.

Skagafjörður þakkar fyrir gott samstarf og skilning.