Fara í efni

Tilkynning ǀ Afgreiðsla Ráðhússins lokar dagana 6.–10. júlí

03.07.2026

Vakin er athygli á því að afgreiðsla Ráðhúss Skagafjarðar verður lokuð vegna framkvæmda frá og með 6. júlí til 10. júlí nk. Afgreiðslan verður opnuð aftur mánudaginn 13. júlí.

Á meðan á lokun stendur verður líkt og fyrr segir, ekki hægt að sækja þjónustu á staðnum, en símaverið verður opið alla daga frá kl. 10:00-12:00 og 12:30-15:00. Bent er á að hægt er að nálgast ýmsa rafræna þjónustu á heimasíðu sveitarfélagsins.

Sveitarfélagið þakkar skilninginn og biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.