Fara í efni

Tilkynning | Malbiksframkvæmdir og tímabundnar götuþrengingar á Sauðárkróki

22.09.2026

Vakin er athygli á því að á næstu dögum verða settar upp tímabundnar götuþrengingar vegna gatnaframkvæmda á Sauðárkróki. 

Framkvæmdir fara fram við:

  • Aðalgötu 9
  • Skagfirðingabraut 23
  • Hólavegur 8
  • Melatún
  • Smábátahöfnin

Þá ber einnig að varast hvassar brúnir vegna malbiksframkvæmda á sömu stöðum.

Jafnframt verða lagfærðar þveranir við Vallarhús og á milli Árskóla og verknámshúss FNV.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát á framkvæmdasvæðum og virða merkingar meðan á framkvæmdum stendur.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.