Fara í efni

Tilkynning | Lokun á heitavatni á Sauðárkróki miðvikudaginn 16. september

15.09.2026
Vakin er athygli á því að loka þarf fyrir heitavatnið miðvikudaginn 16. september frá kl. 16:00 til 17:00, vegna breytinga á tengingum við Mjólkursamlag KS.
 
Um er að ræða lokun sem nær til alls neðri bæjarins, frá Skagfirðingabúð og að Steinull.
 
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.