Fara í efni

Tilkynning I Truflun á heitu- og köldu vatni við Víðigrund á Sauðárkróki

31.08.2026
Vakin er athygli á því að vegna vinnu við tengingar á hitaveitustofni verða truflanir á heitu og köldu vatni í dag, mánudaginn 31. ágúst.
 
Reikna má með að heita vatnið fari af kl. 16:00 og verði ekki komið á aftur fyrr en síðar í kvöld. Kalt neysluvatn verður einnig tekið af í stuttan tíma.
 
Framkvæmdirnar fara fram á gatnamótum Hegrabrautar og Víðigrundar þar sem fjarlægja þarf brunn til að framkvæma tenginguna. Því má búast við að vinnan standi fram á kvöld.
 
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þakkar sveitarfélagið íbúum fyrir þolinmæði og skilning