Tilkynning I Tímabundið breytt aðgengi að bílastæðum við Sundlaug Sauðárkróks
24.11.2026
Vakin er athygli á því að verið sé að malbika nýja bílastæðið austan við Sundlaug Sauðárkróks. Meðan á framkvæmdum stendur verður eldra bílastæðið austan við laugina lokað og gestir sundlaugarinnar eru því beðnir um að leggja ökutækjum sínum á bílastæðinu norðan megin á meðan á framkvæmdum stendur.
Foreldrar og forráðamenn eru beðin um að koma þeim upplýsingum áleiðis til barna og ungmenna sem eiga leið um svæðið, að fylgja merktri hjáleið og fara ekki á götuna.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.