Fara í efni

Tilkynning I Malbiksframkvæmdir á Sauðárkróki í dag, 17. ágúst og á morgun

17.08.2026

Vakin er athygli á því að unnið verður að því að malbika ákveðnar götur á Sauðárkróki í dag, mánudaginn 17. ágúst, og á morgun, 18. ágúst. Vegna þessa má búast við tímabundnum töfum á umferð og hvössum brúnum þar sem verið er að undirbúa eða leggja malbik.

Framkvæmdir verða meðal annars á eftirfarandi götum:

  • Fornósi
  • Hólmagrund
  • Aðalgötu
  • Borgarflöt

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát á framkvæmdasvæðum og virða merkingar og leiðbeiningar starfsmanna.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.