Fara í efni

Tilkynning I Lokað á Aðalgötunni á Sauðárkróki vegna fráveituframkvæmda

11.08.2026

Vakin er athygli á því að Aðalgatan verður lokuð að hluta til á morgun, miðvikudaginn 12. ágúst, til og með 14. ágúst nk. vegna vinnu við fráveitu.

Lokunarpóstar verða milli Hardwok og Kaffi Króks.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.