Tilkynning I Íbúar í Varmahlíð beðnir um að fara sparlega með vatnið
27.08.2026
Vakin er athygli á því að vegna slæmrar stöðu vatnslindarinnar sem sér Varmahlíð fyrir köldu neysluvatni eru íbúar beðnir að fara sparlega með vatnsnotkun. Staða lindarinnar er sérstaklega erfið um þessar mundir og grunnvatnsstaða í Skagafirði almennt mjög lág.
Skagafjarðarveitur biðja íbúa sem eru með heita potta að stöðva rennsli í þá tímabundið og forðast notkun þeirra á meðan þetta ástand varir.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.