Fara í efni

Tilkynning I Íbúar beðnir um að snyrta gróður við lóðamörk fyrir veturinn

08.10.2026

Vakin er athygli á því að íbúar þurfa að fara að huga að snyrtingu gróðurs sem nær út fyrir lóðamörk, sérstaklega þar sem trjágreinar og runnar teygja sig út á gangstéttir og götur. Slíkur gróður getur torveldað snjómokstur yfir vetrartímann, auk þess sem hætta er á skemmdum á vélbúnaði.

Eigendur lóða eru hvött til að sinna þessum verkum sem fyrst. Ef gróður er ekki snyrtur innan skynsamlegs frests mun sveitarfélagið grípa til aðgerða og framkvæma snyrtingu á kostnað eiganda í samræmi við reglugerðir.