Tilkynning I Hundaeigendur í Skagafirði athugið
15.07.2026
Ítrekaðar kvartanir hafa borist til sveitarfélagsins vegna lausagöngu hunda og að hundar séu að valda stórtjóni með því að bíta í fénað.
Sveitarfélagið vill því koma eftirfarandi á framfæri:
- Lausaganga hunda í þéttbýli Skagafjarðar er með öllu óheimil, alla daga ársins.
- Hundaeigendur bera ábyrgð á að hundar séu undir fullri stjórn öllum stundum.
- Skylt er að skrá alla hunda í þéttbýli samkvæmt gildandi reglum sveitarfélagsins.
- Hundaeigendum eða umráðamanni hunds er skylt að fjarlægja saur eftir hundinn.
Sveitarfélagið biður hundaeigendur að virða þessar reglur og tryggja þar með öryggi fólks, búfjár og annarra dýra.
Lesa má nánar um samþykkt um hunda- og kattahald í Skagafirði hér.