Tilkynning I Gangstétt á Skagfirðingabraut á Sauðárkróki lokuð vegna framkvæmda
07.08.2026
Vakin er athygli á því að vegna framkvæmda við fráveitu er gangstéttin á milli Sundlaugar Sauðárkróks og Arion banka lokuð. Lokunin mun vara fram á miðvikudag í næstu viku.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða lokanir á svæðinu. Fólk er sérstaklega beðið um að fara ekki um vinnusvæðið meðan á framkvæmdum stendur og nota aðrar gönguleiðir á meðan.
Sveitarfélagið biðst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.