Tilkynning I Breytingar á bílastæðinu við Safnahúsið meðan á framkvæmdum stendur
18.08.2026
Vakin er athygli á því að vegna framkvæmda við væntanlegt menningarhús á Sauðárkróki verður Suðurgatan lokuð að sunnanverðu á framkvæmdatímanum og núverandi innakstur að bókasafnsplaninu verður jafnframt lokaður. Til að tryggja áfram aðgengi að svæðinu verður opnaður nýr innakstur að norðanverðu.
Breytingarnar hafa nú þegar tekið gildi og munu gilda meðan á framkvæmdum stendur.
Sveitarfélagið biðst afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og hvetur íbúa og aðra vegfarendur til að sýna aðgát á svæðinu og fylgja merkingum.