Fara í efni

Tilkynning I Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út fyrir Norðurland vestra

13.10.2026

Vakin er athygli á því að Veðurstofan hefur gefið út bæði gular og appelsínugular viðvaranir fyrir Norðurland vestra á morgun, miðvikudaginn 14. október. Von er á stormi og stórhríð með lélegu skyggni og snjó á vegum. Eftir kl. 20:00 verður síðan ekkert ferðaveður, en búist er við norðan 18-25 m/s. Veðurviðvörunin gildir til kl. 05:00 aðfaranótt fimmtudags.

Í dag er því kjörið að nýta lognið á undan storminum til að ganga frá lausamunum utandyra eins og garðhúsgögnum, trampólínum og öðru sem getur auðveldlega fokið og valdið tjóni á eignum annarra.

Sveitarfélagið hvetur íbúa til þess að fylgjast vel með veðurspám, sér í lagi ef ferðast á milli landshluta.