Fara í efni

Tilkynning I Áminning um gildandi hraðatakmarkanir í íbúðagötum

28.09.2026

Undanfarið hafa borist ábendingar um hraðakstur í íbúðagötum sveitarfélagsins. Nýlega munaði litlu að ekið yrði á gangandi vegfaranda og því vill sveitarfélagið minna ökumenn á mikilvægi þess að virða gildandi hraðatakmarkanir. Hámarkshraði ökutækja í íbúðagötu á Íslandi er 30 km/klst. 

Sveitarfélagið biður ökumenn að sýna aðgát og hafa í huga að í íbúðagötum eru gangandi og hjólandi vegfarendur ásamt börnum á leik.