Fara í efni

Tilkynning frá Skagafjarðarveitum

22.12.2023

Vegna kulda og mikillar notkunar á heitu vatni þessa dagana hefur verið lokað fyrir rennsli í sundlaugina á Hofsósi.

Áfram verður heitt vatn í pottunum og þeir opnir, en laugin sjálf verður köld.

Notendur út að austan sem og annars staðar í firðinum eru hvattir til að fara sparlega með heita vatnið í kuldanum.