Fara í efni

Tilkynning: Bilun á kaldavatnstanki í Varmahlíð

24.02.2026

Vakin er athygli á því að bilun kom upp í kaldavatnstanki í Varmahlíð í morgun og eru því truflanir víða í hverfinu, sums staðar er kalt vatn farið af.

Búið er að finna orsök bilunarinnar og unnið er að viðgerð. Ljóst er þó að það mun taka tíma að fylla tankinn á ný og ná upp eðlilegum þrýstingi. Af þessum sökum hefur sundlauginni verið lokað tímabundið.

Íbúar sem enn hafa kalt vatn eru vinsamlegast beðnir um að fara sparlega með það á meðan unnið er að úrbótum.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.