Tilboðsöflun ǀ Girðingavinna
Óskað er eftir tilboðum í að taka niður 5 strengja rafmagnsgirðingu sem er um 4,5 kílómetrar að lengd. Um er að ræða verk þar sem girðingin liggur yfir nokkuð langt svæði og felur í sér að taka hana upp með tilheyrandi búnaði og frágangi.
Sá sem tekur verkið að sér fær girðingarefnið til eignar auk greiðslu fyrir framkvæmdina. Verkið gæti því hentað vel þeim sem hefur reynslu af girðingarvinnu og hefur not fyrir efnið samhliða fjárhagslegri greiðslu. Skilyrði er að fjarlægja allt af svæðinu.
Verkinu skal vera lokið í síðasta lagi í september 2026.
Óskað er eftir heildartölu með virðisaukaskatt í verkið. Tilboði skal skilað inn í síðasta lagi 15.júlí 2026 með tölvupósti á netfangið: sveinn.ulfarsson@skagafjordur.is. Sá hinn sami veitir nánari upplýsingar um verkið í síma 847-9194.
Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér aðstæður fyrir tilboðsgerð. Nánari upplýsingar um verkið, aðstæður og fyrirkomulag eru veittar við fyrirspurn. Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.