Fara í efni

Til sölu veiðileyfi í Laxá í Laxárdal

30.05.2018
Laxá í Laxárdal. Mynd agn.is

Veiðileyfi í eigu sveitarfélagsins í Laxá í Laxárdal í fyrrum Skefilsstaðahreppi eru til sölu. Um er að ræða tvo daga í ágúst. Veitt er á svæði 2 fyrir hádegi frá brúnni við Skíðastaði að Háafossi og á svæði 1 eftir matinn frá ósi árinnar við Sævarland að brúnni við Skíðastaði.

Leyfð er ein stöng á hvoru svæði í ánni og er daglegur veiðitími frá kl 7 - 13 og 16 - 22.

Einungis er leyfð fluguveiði á flugustöng og eru fimm laxar hámarksveiði. Halda má einum hæng undir 70 cm, annars skal sleppa öllum laxi aftur í ána og leyfa særðum fiskum að njóta vafans. Veiðimanni ber að hætta veiði í ánni þegar hámarksveiði laxa er náð. Leyfilegt er að halda öllum silungi. 

Verðið fyrir daginn er 30.000 kr og geta áhugasamir haft samband við skagafjordur@skagafjordur.is