Fara í efni

Til sölu veiðileyfi í Laxá á Skaga

11.05.2016
Laxá í Laxárdal. Mynd agn.is

Veiðileyfi í eigu sveitarfélagsins í Laxá í Laxárdal í fyrrum Skefilsstaðahreppi eru til sölu. Það eru tveir dagar sem um ræðir, miðvikudagurinn 13. júlí og laugardagurinn 6. ágúst. Veitt er á svæði 1 fyrir hádegi frá ósi árinnar við Sævarland að brúnni við Skíðastaði og á svæði 2 eftir matinn en það er frá brúnni við Skíðastaði að Háafossi.

Leyfð er ein stöng á hvoru svæði í ánni og er daglegur veiðitími frá kl 7 - 13 og 16 - 22.

Einungis er leyfð fluguveiði á flugustöng og eru fimm laxar hámarksveiði. Halda má einum hæng undir 70 cm, annars skal sleppa öllum laxi aftur í ána og leyfa særðum fiskum að njóta vafans. Veiðimanni ber að hætta veiði í ánni þegar hámarksveiði laxa er náð. Leyfilegt er að halda öllum silungi. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni laxaskef.is

Verðið fyrir daginn er 28.000 kr og geta áhugasamir haft samband við skagafjordur@skagafjordur.is