Fara í efni

Til sölu veiðileyfi í Laxá

19.08.2015
Mynd agn.is

Veiðileyfi í eigu sveitarfélagsins í Laxá í Laxárdal er til sölu og gildir það sunnudaginn 23. ágúst. Veitt er á svæði 2 fyrir hádegi en það er frá brúnni við Skíðastaði að Háafossi og á svæði 1 eftir matinn frá ósi árinnar við Sævarland að brúnni við Skíðastaði. 

Leyfð er ein stöng á hvoru svæði í ánni og er daglegur veiðitími frá kl 7 til kl 13 og  frá kl 16 til kl 21.

Einungis er leyfð fluguveiði á flugustöng og eru fimm laxar hámarksveiði. Halda má einum hæng undir 70 cm, annars skal sleppa öllum laxi aftur í ána og leyfa særðum fiskum að njóta vafans. Veiðimanni ber að hætta veiði í ánni þegar hámarksveiði laxa er náð. Leyfilegt er að halda öllum silungi. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni laxaskef.is

Verðið fyrir daginn er 25 þúsund krónur og geta áhugasamir haft samband við skagafjordur@skagafjordur.is