Fara í efni

Þroskaþjálfar óskast til starfa á Sauðárkróki

09.05.2018

Þroskaþjálfar óskast til starfa á Sauðárkróki

 

Upphaf starfs: 1. júní 2018 eða eftir samkomulagi. Um framtíðarstörf er að ræða.

Fjöldi & starfshlutföll: 2 störf í 100% starfshlutfalli.

Starfsheiti: Deildarstjóri þjónustu 2.

Lýsing á störfum: Deildarstjóri stýrir deild eða þjónustukjarna í búsetuþjónustu undir stjórn forstöðumanns. Í starfinu felst dagleg verkstjórn, skipulag og eftirfylgni verkefna.  Í starfinu felst m.a. þjónusta við íbúa, leiðsögn og ráðgjöf til samstarfsaðila.

Unnið er eftir hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og valdeflingu.

Menntunarkröfur: Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun á sviði heilbrigðis-, mennta- eða félagsvísinda. Krafa er gerð um bílpróf.

Hæfniskröfur: Reynsla og þekking í faglegri  stjórnun, áætlanagerð og starfsmannahaldi er æskileg. Þekking á lögum og reglugerðum sem varða þjónustu við fatlað fólk er æskileg. Reynsla af teymisvinnu er kostur.

Leitað er að einstaklingi með framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni.  Umsækjandi þarf jafnframt að hafa góða vitund fyrir sjálfum sér, ríka ábyrgðartilfinningu, vera tilbúinn til að tileinka sér nýjar hugmyndir, hafa metnað í starfi, jákvæður og sýna af sér sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.

Hreint sakavottorð í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks.

Vinnutími: Vaktavinna.

Launakjör: Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Þroskaþjálfafélag Íslands eða hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 23. maí 2018

Nánari upplýsingar: Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, félagsmálastjóri, í síma 455 6000 eða með því að senda fyrirspurn á gretasjofn@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Afrit af prófskírteini, leyfisbréfi ásamt ökuskírteini þurfa að fylgja umsókn.

Umsókn ásamt fylgiskjölum skal skilað í gegnum íbúagátt eða heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.