Fara í efni

Þrír styrkir til Skagafjarðar úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

10.03.2021
Drangey

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, gerðu í gær grein fyrir úthlutun fjármuna til uppbyggingu innviða, náttúruverndar og annarra verkefna á ferðamannastöðum árið 2021.

Samtals er nú úthlutað 764 milljónum króna úr Landsáætlun um uppbyggingu innviða og 807 milljónum úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða sem gerir kleift að halda áfram því mikilvæga verkefni að byggja upp innviði á ferðamannastöðum.

Ánægjulegt er frá því að segja að þrír styrkir renna til Skagafjarðar úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða árið 2021.

Eftirtalin verkefni fengu styrk:

Drangeyjarferðir ehf – Flotbryggja í Drangey. Kr. 20.000.000,- styrkur til að endurgera steypta bryggju við Drangey og flotbryggju. Verkið er flókið þar sem það er verið að steypa í sjó. Búið er að koma fyrir steyputeinum og keðjum til að festa saman stóru steinana í fjörunni og þannig búið að gera allt klárt til að ljúka þessum þætti verksins. Verkefnið er að styrkja flotbryggjuna sjálfa og setja í hana hólf þannig að hún fljóti betur og stórauka þannig öryggi og aðgengi ferðamanna á þessum þekkta ferðamannastað.

Sveitarfélagið Skagafjörður - Ketubjörg - Aðgengi og öryggi ferðamanna. Kr. 1.361.260,- styrkur í undirbúnings- og hönnunarvinnu við Ketubjörg á Skaga. Markmiðið er að gera bílastæði, merkja svæðið betur, leggja göngustíga og gera öryggisráðstafanir við björgin. Verkefnið rímar vel við áherslur sjóðsins en það snýr að hönnun á aðstöðu til að bæta öryggi og aðgengi fyrir ferðamenn. Það er á áfangastaðaáætlun svæðisins.

Þórhildur María Jónsdóttir - Bætt aðgengi við flutningakláf á Skatastöðum. Kr. 1.322.000,- styrkur í fyrsta fasa, undirbúning- og hönnun á bættu aðgengi við kláfinn yfir Eystri-Jökulsá sem er annar tveggja slíkra, sem enn eru í notkun á landinu. Hann var settur upp árið 1856 og endurbyggður í núverandi mynd 1948. Verkefnið felst í bættu öryggi við kláfinn, bílastæði, göngustíg, upplýsingaskiltum og áningarstað. Verkefnið er til þess fallið að vernda og stýra umferð ferðamanna á veiku svæði og tónar því vel við áherslur Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða.

Á heimasíðu Ferðamálastofu segir: „Hæstu styrkirnir að þessu sinni eru styrkir til að hanna og byggja uppgöngu- og hjólastíg frá Svínafelli yfir í þjóðgarðinn í Skaftafelli, bygging þjónustuhúss fyrir ferðamenn við Hengifoss og lokastyrkur til uppbyggingar við Þrístapa. 

Alls fá 17 verkefni styrki sem eru hærri en 20 milljónir króna. Þar má sem dæmi nefna byggingu skógarhúss við Sólbrekkuskóg, áfangastaði við Tjörnes, stígagerð og brúun í Glerárdal og flotbryggju í Drangey. 

Með breyttum lögum um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og breyttu gæðamati eru 46 af 53 verkefnum skilgreind á áfangastaðaáætlun innan síns svæðis, en með því er stuðlað að sjálfbærri þróun, jafnvægi og markvissari svæðisbundinni þróun á áfangastöðunum.“

Úthlutun Framkæmdasjóðs ferðamannastaða