Þrifabeit fyrir hross
15.06.2026
Sveitarfélagið óskar eftir aðila sem hefur áhuga á svokallaðri þrifabeit fyrir hross á Sauðárkróki og á Hólum í Hjaltadal.
Á Sauðárkróki er um að ræða hólf sem staðsett er á milli Hásætis og Sæmundarhlíðar, sjá nánar á korti.

Einungis mega vera fjögur hross í hólfinu í senn og viðkomandi sér sjálfur um að girða. Jafnframt ber sá hinn sami ábyrgð á hrossunum.
Á Hólum er óskað eftir aðilum í svokallaða þrifabeit fyrir hross, sjá nánar á korti.

Aðili sér sjálfur um að girða og ber jafnframt ábyrgð á hrossunum.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Þ. Finster Úlfarsson, umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi, á netfanginu sveinn.ulfarsson@skagafjordur.is