Þjónustustefna Skagafjarðar 2026-2029 - Samráð við íbúa
29.10.2025
Með lögum nr. 96/2021 sem tóku gildi í júní 2021 samþykkti Alþingi nýtt ákvæði við sveitarstjórnarlög sem fjallar um þjónustustefnu í byggðum og byggðarlögum sveitarfélags. Samkvæmt 130. gr. a sveitarstjórnarlaga, skal sveitarstjórn móta stefnu fyrir komandi ár og næstu þrjú árin eftir það, um það þjónustustig sem sveitarfélagið hyggst halda uppi í byggðum og byggðarlögum fjarri stærstu byggðakjörnum viðkomandi sveitarfélags.
Skagafjörður leitar eftir ábendingum/athugasemdum við þjónustustefnu Skagafjarðar. Hægt er að skila inn ábendingum/athugasemdum til og með 10. nóvember nk.
Smelltu hér til að skoða drög að þjónustustefnu Skagafjarðar 2026-2029.
Hægt er að senda inn ábendingu/athugasemd með því að smella hér.