Fara í efni

Þakkartónleikar í Tónlistarskólanum á Sauðárkróki 15. október kl. 20

15.10.2013

Hópur Skagfirskra strengja verður með tónleika á Sauðárkróki 15. október kl. 20 í Tónlistarskólanum, en hópurinn er skipaður 12 stúlkum. Á heimasíðu Tónlistarskólans segir að hópurinn hafið haldið til Árósa í Danmörku ásamt kennara og tveimur foreldrum til að halda tónleika og skoða tónlistarskólann í Árósum. Hélt hópurinn þrenna tónleika auk þess að hitta nemendur skólans og spila með þeim. Hópurinn naut styrkja frá ýmsum aðilum og vill með þessum tónleikum þakka fyrir sig. Sjá nánar: