Fara í efni

Táin og Strata færir Dagdvöl aldraða gjöf

27.10.2021
Hjördís og Rannveig Helgadætur með einn af köttunum sem þær færðu Dagdvöl aldraðra

Systurnar Hjördís og Rannveig Helgadætur í Tánni og Strata færðu Dagdvöl aldraðra veglega gjöf nú á dögunum þegar þær afhentu þrjú vélræn stuðningsdýr. Gjöfin mun koma sér afar vel fyrir notendur Dagdvalar að sögn Stefaníu Sifjar Traustadóttur forstöðumanns, og eru þegar farin að vekja mikla lukku og umræður.

Dýrin snúast um auðvelda umhirðu og þægindi sem fara saman með tækni til að skapa sem bestu mögulegu upplifunina fyrir hinn aldraða. Dýrin eru raunveruleg með mjúkum feld og skynjurum sem bregaðast við snertingu og hljóði. Kötturinn malar og mjálmar, hreyfir fótinn og eyrun, höfuðið og búkinn og bregst þannig við snertingu svipað og um raunverulegan kött væri að ræða. Hundurinn geltir þegar talað er til hans, vaggar skottinu, snýr höfðinu í átt að hljóði og hjarta hans slær þegar honum er klappað.

Dýr sem þessi eru hönnuð með það að markmiði að veita félagsskap og kalla fram minningar en rannsóknir sýna að þau dragi úr einmannaleika, félagslegri einangrun og upplifun þunglyndis hjá öldruðum og þá sér í lagi hjá einstaklingum sem glíma við heilabilun.

Þeim systrum eru færðar hugheilar þakkir fyrir þessa glæsilegu gjöf.