Fara í efni

Tæming rotþróa framundan í Skagafirði

26.08.2015

Næstu vikurnar mun fara fram tæming rotþróa í Skagafirði vestan Vatna, frá Austurdal, Vesturdal og Vatnsskarði til Sauðárkróks. Eigendur rotþróa eru vinsamlegast beðnir um að tryggja gott aðgengi fyrir losunarbílinn og að rotþrærnar séu auðfinnanlegar og opnanlegar. Ef eigendur vilja koma athugasemdum á framfæri má hafa samband við skrifstofu sveitarfélagsins í síma 455 6000 eða á netfangið ipi@skagafjordur.is