Syndum hefst 1. nóvember
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2026.
Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Sund er frábær hreyfing bæði til þess að hlúa að heilsunni og sem skemmtileg tómstundaiðja. Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á forsíðu syndum.is.
Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra. Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. Þá mun einnig liggja fyrir skráningarblað í sundlaugum Skagafjarðar.
Átakið var fyrst haldið 2021 og þá syntu landsmenn samtals 11,6 hringi í kringum landið. Í fyrra voru syntir 14,7 hringir en markmiðið í ár er að fá enn fleiri til að vera með og uppgötva hvað sund er frábær alhliða hreyfing.
Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans.
Sveitarfélagið hvetur íbúa til þess að taka virkan þátt í átakinu.