Fara í efni

Sveitarfélagið Skagafjörður hlýtur styrk fyrir uppsetningu á þráðlausu netsambandi

12.12.2018

Sveitarfélagið Skagafjörður hlýtur styrk fyrir uppsetningu á þráðlausu netsambandi úr verkefninu WiFi4EU, en verkefnið WiFi4EU gerir sveitarfélögum innan Evrópu kleift að sækja um styrk að upphæð 15.000 evrum. Styrkurinn er ætlaður í  uppsetningu á þráðlausu netsambandi (free hotspot) í opinberu rými (almenningsrými) fyrir íbúa sveitarfélaga og voru það þrjú íslensk sveitarfélög sem hlutu styrkinn að þessu sinni eða Sveitarfélagið Skagafjörður, Akraneskaupstaður og Reykjavíkurborg.

Alls hlutu 2.800 sveitarfélög styrk af þeim 13.000 sem sóttu um innan EES-svæðisins. Tekið var við umsóknum 7. til 9. nóvember sl. en styrkhafar eru dregnir út úr þeim umsóknum sem berast. Að þessu sinni voru 42 milljónir evra til skiptanna og nemur hver styrkur 15.000 evrum.

Þetta eru því sannkölluð gleðitíðindi fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð.

Hér má sjá þau sveitarfélög sem fengu styrk að þessu sinni The winners of WiFi4EU call announced!