Fara í efni

Sveitarfélagið býður frítt í sund miðvikudaginn 17. febrúar

16.02.2021
Sveitarfélagið Skagafjörður býður frítt í sund í sundlaugunum á Hofsósi, Sauðárkróki og í Varmahlíð, miðvikudaginn 17. febrúar.

Er þetta hluti af samvinnuverkefninu "Hreyfðu þig daglega" sem Geðhjálp stendur fyrir þar sem sveitarfélög um allt land bjóða frítt í sund sem aukaskammt af G-vítamíni dagsins.

" Að fara í sund, taka 100 metrana eða bara láta þreytuna líða úr sér í pottinum er G-vítamín í sinni tærustu mynd!", segir í fréttatilkynningu frá Geðhjálp.

Opnunartími sundlauganna verður sem hér segir miðvikudaginn 17. febrúar:

Sundlaug Sauðárkróks kl. 06:50 - 20:30

Sundlaugin í Varmahlíð kl. 08:00 - 20:30

Sundlaugin á Hofsósi kl. 07:00 - 13:00 og 17:00 - 20:00

Verið velkomin í sund!