Fara í efni

Sundlaugin á Sauðárkróki lokuð um helgina vegna framkvæmda

11.03.2022

Vegna framkvæmda verður Sundlaugin á Sauðárkróki lokuð helgina 12.-13. mars en stefnt er að opnun seinnipart n.k. mánudags. Beðist er velvirðingar á óþægindum sem af þessu getur skapast.

Vegna þessa verður opnunartími sundlaugarinnar í Varmahlíð lengdur á morgun, laugardaginn 12. mars, og verður laugin opin til kl. 18:00.

Kær kveðja, starfsfólk Sundlaugarinnar á Sauðárkróki.