Sundlaugin á Hofsósi óskar eftir að ráða kvenmann til starfa
Sundlaugin á Hofsósi óskar eftir að ráða kvenmann til starfa
Upphaf starfs: Frá 1. nóvember 2016 eða eftir samkomulagi.
Starfshlutfall: 45% starfshlutfall. Um framtíðarstarf er að ræða.
Lýsing á starfi: Starf sundlaugarvarðar felst m.a. í öryggisgæslu við sjónvarpsskjá og laug, auk eftirlits með öryggiskerfum, afgreiðslu, baðvörslu og þrifum.
Menntunar- og hæfniskröfur: Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri. Æskilegt er að viðkomandi sé með björgunarsundpróf. Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund, hæfni í mannlegum samskiptum og samstarfsvilja. Reynsla og menntun er kostur.
Vinnutími: Unnið er í vaktavinnu.
Starfsheiti: Sundlaugarvörður I.
Launakjör: Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag
Umsóknarfrestur er til og með 16. október 2016
Nánari upplýsingar: Þorvaldur Gröndal, í síma 660-4639 eða valdi@skagafjordur.is.
Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins, www.skagafjordur.is, laus störf, eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagsins.