Fara í efni

Sundlaugin á Hofsósi lokuð tímabundið

01.09.2021
Sundlaugin á Hofsósi

Sundlaugin á Hofsósi verður lokuð, þar til annað verður ákveðið. Ástæðan er Covid smit sem kom upp hjá starfsmanni laugarinnar. Unnið er að þrifum í samræmi við ráðleggingar  Embættis landlæknis og er ráðleggingum rakningateymis almannavarna um viðbrögð og aðgerðir fylgt í hvívetna. Viðkomandi starfsmaður er kominn í einangrun og þeir sem taldir voru útsettir fyrir smiti eru komnir í sóttkví. Staðan verður endurmetin síðar í dag þegar búið er að þrífa laugina en líklegt þykir að takmarka þurfi opnunartímann tímabundið þar sem smitið heggur ansi stórt skarð í starfsmannahópinn.