Fara í efni

Sundlaugar í Varmahlíð og Sauðárkróki lokaðar um helgina

16.12.2022

Sundlaugar í Varamhlíð og Sauðárkróki verða lokaðar um helgina. Sundlaugin á Hofsósi verður opin áfram. Um fyrirbyggjandi aðgerð er að ræða til að forgangsraða heitu vatni til heimila en mikið álag hefur verið á hitaveitukerfi Skagafjarðar vegna langvarandi kuldatíðar. Áframhaldandi frostaspá er framundan og verður staðan varðandi lokanir endurmetin í samræmi við það.

Íbúar eru hvattir til að spara heitt vatn eftir bestu getu, til dæmis með því að lækka stillingar á heitavatnspotttum og plönum sem nota ekki afallsvatn. Ástandið er sérstaklega slæmt á Sauðárkróki og hjá notendum Varmahlíðarveitu en tilmælunum er beint til allra notenda.