Fara í efni

Sundlaug Sauðárkróks opin á ný

20.12.2022
Sundlaug Sauðárkróks. Mynd af framkvæmdum við laugina.

Sundlaug Sauðárkróks hefur verið opnuð á ný, en loka þurfti lauginni tímabundið. Um fyrirbyggjandi aðgerð var að ræða til að forgangsraða heitu vatni til heimila en mikið álag hefur verið á hitaveitukerfi Skagafjarðar vegna langvarandi kuldatíðar. Sundlaugin í Varmahlíð verður áfram lokuð þar til annað verður tilkynnt. Sundlaugin á Hofsósi er opin samkvæmt opnunartíma en ekki hefur þurft að loka henni.