Fara í efni

Sumarstörf - málefni fatlaðra

10.04.2015

Sumarstörf laus til umsóknar
Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar

Málefni fatlaðs fólks - búseta og dagþjónusta.

Lýsing á starfinu: Starfsmaður aðstoðar fatlað fólk við athafnir daglegs lífs og sinnir líkamlegum og félagslegum þörfum eftir því sem við á. Um hlutastörf er að ræða.
Hæfniskröfur: Leitað er að einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki og hafa til að bera lipurð í mannlegum samskiptum. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla og menntun er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 20 ára aldri.

Í búsetu er um vaktavinnu að ræða en dagvinnu í dagþjónustu.

Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2015

Laun og önnur starfskjör fara eftir kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Nánari upplýsingar um störfin gefa:
Steinunn Rósa Guðmundsdóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi, steinunnr@skagafjordur.is, s:455-6000.
Edda E. Haraldsdóttir, forstöðumaður, fellstun@skagafjordur.is, s: 453-6692.
Jónína G. Gunnarsdóttir, forstöðumaður, idja@skagafjordur.is, s: 453-6853.

Sótt er um störfin á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (störf í boði) eða í íbúagátt sveitarfélagsins.