Fara í efni

Sumarstörf á Leikskólanum Ársölum

04.05.2015

 

Sumarstörf á Leikskólanum Ársölum

Leikskólinn Ársalir á Sauðárkróki óskar eftir að ráða starfsmenn til sumarafleysinga frá 1. júní - 14. ágúst 2015. Vakin er athygli á því að leikskólinn verður lokaður frá 20. júlí - 3. ágúst. Um er að ræða 100% starfshlutfall. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2015

Umsóknum sem greina frá menntun og fyrri störfum skal skila í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins (störf í boði) eða í gegnum íbúagátt sveitarfélagins.

Allar nánari upplýsingar veitir Anna Jóna Guðmundsdóttir, leikskólastjóri, í gegnum netfangið; arsalir@skagafjordur.is eða í síma 455-6090.