Fara í efni

Sumarstarf - Sundlaugin á Sólgörðum

20.04.2015

Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar leitar að einstaklingi til að taka að sér starf sundlaugarvarðar við sundlaugina á Sólgörðum sumarið 2015

Tímabil: 15. júní til 15. ágúst.
Lýsing á starfinu: Starfið felur í sér allan daglegan rekstur, s.s. uppgjör, innkaup endursöluvara og þrif, sem og öryggisgæslu sundlaugar, eftirlit með öryggiskerfum og afgreiðslu sundlaugargesta.
Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að hafa náð 20 ára aldri, hafa ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Reynsla og menntun er kostur.
Vinnutími: Vaktavinna.
Starfsheiti: Sundlaugarvörður.
Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kjalar eða Öldunnar stéttarfélags.
Yfirmaður: Þorvaldur Gröndal, forstöðumaður frístunda- og íþróttamála.

Umsóknarfrestur er til og með 4. maí 2015

Sótt er um starfið á heimasíðu sveitarfélagsins (störf í boði) eða í íbúagátt sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar veitir Þorvaldur Gröndal í síma 660-4639 eða á valdi@skagafjordur.is.