Fara í efni

Sumarstarf: sundlaugarvörður á Sólgörðum

16.05.2014

 

Fjölskyldusvið Sveitarfélagsins Skagafjarðar leitar að einstaklingi til að taka að sér starf sundlaugavarðar við sundlaugina á Sólgörðum í sumar.

 

Tímabil:                               Byrjun júní til loka ágúst.

Lýsing á starfinu:            Starfið felur í sér allan daglegan rekstur, s.s. uppgjör, innkaup endursöluvara og þrif, sem og öryggisgæslu  sundlaugar, eftirlit með öryggiskerfum og afgreiðslu sundlaugargesta.

Kröfur v/starfs:               Viðkomandi þurfa að hafa náð 20 ára aldri, hafa ríka þjónustulund og samstarfsvilja. Reynsla og menntun er kostur.

Vinnutími:                         Vaktavinna

Starfsheiti:                         Sundlaugavörður

Launakjör:                          Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Kjalar eða Öldunnar.

Yfirmaður:                         Þorvaldur Gröndal, forstöðumaður frístunda- og íþróttamála.

 

Umsóknarfrestur er til og með 28. maí.


Sótt er um starfið á heimasíðu sveitarfélagins.  

Nánari upplýsingar veitir Þorvaldur Gröndal í síma 660-4639 eða á valdi@skagafjordur.is

Sækja um.