Fara í efni

Sumarlestur 2026 - skráning er hafin

21.05.2026

Skráning í sumarlestur er hafin og að þessu sinni verður farið í ævintýranlegt ferðalag með Gúnda geithafri.

Fyrirkomulaginu er þannig háttað að fyrir hverjar 15 mínútur af lestri þarf að lita leiðina í ævintýrakortinu  í vegabréfinu. Við fjórða hvern lestur eiga börnin að hafa lesið í klukkustund og lenda á stjörnu. Fyrir hverja stjörnu fæst stimpill eða límmiði í vegabréfið á næsta bókasafni og jafnframt happamiði til að setja í lukkupott. Dregið verður síðan úr happamiðum í lok sumars og heppnir þátttakendur fá vinning.

Smám saman ná börnin að heimsækja alla áhugaverðu staðina sem Gúndi ferðast um. Í lokin er þá hægt að segja með stolti: „Ég fann grasið í Grænuhlíð!“

Öll börn eru hvött til þess að skrá sig og fá vegabréfið til að hefja ævintýrið, en það fæst á öllum starfsstöðvum Héraðsbókasafnsins í Skagafirði.

Nánar um verkefnið má finna hér