Fara í efni

Sumarbúðir fyrir ungmenni með ADHD og/eða einhverfu í Háholti í sumar

28.05.2020
Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar við undirritun samningsins í dag.

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra, Vilmundur Gíslason framkvæmdastjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar undirrituðu í dag samning um sumarbúðir í Háholti fyrir ungmenni með ADHD og/eða einhverfu í sumar.

Sumarbúðirnar eru ætlaðar ungmennum á aldrinum 8 – 18 ára með ADHD og/eða einhverfu greiningu með það að markmiði að fjölga valkostum um afþreyingu fyrir þennan hóp, rjúfa félagslega einangrun þeirra, ásamt því að létta á álagi af fjölskyldum barna vegna afleiðinga COVID 19.

Verða sumarbúðirnar starfræktar frá júní – ágúst 2020 og munu 10 – 20 ungmenni njóta dvalarinnar saman í 1 – 2 vikur í senn. Áætlað er að taka á móti 40 – 80 ungmennum í Háholti í sumar.

Sigfús Ingi var ánægður við undirritunina: „Það er verulega ánægjulegt og gleðilegt skref að þessi ungmenni hafi nú möguleika á að koma hingað í Skagafjörð og njóta alls þess góða sem svæðið hefur uppá að bjóða. Aðstaðan hér í Háholti er eins og best verður á kosið og vonumst við til að áframhald verði á verkefninu eftir sumarið.”

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra: „Það er virkilega ánægjulegt að vera búinn að skrifa undir þennan samning um sumarbúðirnar í Háholti. Það er staðreynd að viðkvæmir hópar verða fyrir miklum áhrifum vegna Covid-19 faraldursins og óvissan sem fylgir hefur mikil áhrif á börn og ungmenni. Það er dásamlegt að vera hér í Háholti og ég er sannfærður um það að þau börn og ungmenni sem hingað koma í sumar eigi eftir að njóta dvalarinnar.”