Fara í efni

Sumarafleysing við sambýlið Grundartúni, Hvammstanga

11.04.2016

Laust er til umsóknar umönnunarstarf við Sambýlið á Hvammstanga, frá  1. júní til 31. ágúst

 

Starfið felst í umönnun og stuðningi við fatlað fólk. 

Um er að ræða lifandi og gefandi starf með áhugaverðu fólki.

Unnið er á vöktum.

 

Við leitum að jákvæðum og áhugasömum einstaklingi sem sýnir starfinu og heimilismönnum virðingu.

Þekking og reynsla við vinnu á sambýli er æskileg en ekki skilyrði.  Æskilegt að viðkomandi sé orðinn 20 ára.

 

Laun og önnur starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

 

Umsóknum skilað  á í gegnum heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar, www.skagafjordur.is (laus störf) fyrir 24. apríl nk.

Upplýsingar um starfið veitir Jón Ingi Björgvinsson forstöðumaður Sambýlis og Iðju, sími:893-3840 eða á mfhv@simnet.is.