Fara í efni

Sumar 2018 - Liðveisla í atvinnnu

11.04.2018

Sumarstörf 2018

Liðveisla í atvinnu, Sauðárkróki

 

Tímabil: 25. maí -25. ágúst 2018.

Fjöldi & starfshlutfall: 2 störf í 47% starfshlutfalli.

Starfsheiti: Félagsleg liðveisla I

Lýsing á starfinu: Starfsmaður aðstoðar fatlað fólk í starfi.

Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri. Hreint sakavottorð í samræmi við lög um málefni fatlaðs fólks.

Vinnutími: Dagvinna.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2018

Nánari upplýsingar: Ragnheiður Á. Jóhannsdóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi, ragnheidura@skagafjordur.is, 455-6081, 770-7355.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.