Fara í efni

Sumar 2018 - Íþróttahús

03.04.2018

Sumarstörf 2018

Íþróttahús á Sauðárkróki

 

Tímabil: 18. apríl til 30. september 2018, eða eftir samkomulagi.

Starfshlutfall: 100% starfshlutfall.

Starfsheiti: Starfsmaður íþróttamannvirkis.

Lýsing á starfinu: Starfið felur í sér almennt eftirlit með íþróttahúsi, þar á meðal eftirlit með íþróttasal sem og þrifum á sal og klefum. Starfinu fylgja mikil samskipti við börn og fullorðna. Auk þessa felur starfið í sér öryggisgæslu við sjónvarpsskjá.

Hæfniskröfur: Mikilvægt er að umsækjendur búi yfir góðri færni í mannlegum samskiptum, þjónustulipurð og hafi metnað til að láta gestum líða vel. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, háttvísi, stundvísi og áreiðanleika í starfi. Reynsla er æskileg. Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.

Vinnutími: Dag- og kvöldvinna samkvæmt vaktaplani.  (Helgarvinna þegar mót og leikir eru.)

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2018

Nánari upplýsingar: Þorvaldur Gröndal, forstöðumaður frístunda- og íþróttamála, valdi@skagafjordur.is og í síma 660-4639.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt  sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Starfið hentar jafnt konum sem körlum.