Fara í efni

Sumar 2018 - Garðyrkjudeild

23.03.2018

Sumarstörf 2018

Garðyrkjudeild

  

Almenn störf - málningarvinna

Tímabil 2. maí til 31. ágúst 2018.

Starfshlutfall: 80%-100% starfshlutfall.

Lýsing á starfinu: Starfið felst í almennum verkamannastörfum, með áherslu á málningarvinnu í kringum leiksvæði, leiktæki, bekki o.s.frv. Starfað er aðallega utanhúss samkvæmt leiðsögn frá næsta yfirmanni en starfsmaður leysir að jafnaði verkefni dagsins nokkuð sjálfstætt. 

Hæfniskröfur: Leitað er að laghentum einstaklingi.Lögð er áhersla á starfsgleði, gagnkvæma virðingu, háttvísi og stundvísi. Reynsla af sambærilegum störfum er kostur. 

Menntunarkröfur: Bílpróf.

Vinnutími: Dagvinna.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl 2018

Nánari upplýsingar: Helga Gunnlaugsdóttir, garðyrkjustjóri, 861-3490 eða helga@skagafjordur.is.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.