Fara í efni

Sumar 2018 - Frekari liðveisla, Sauðárkróki

19.03.2018

Sumarstörf 2018

Frekari liðveisla, Sauðárkróki

 

Tímabil starfs 25. maí -25. júlí 2018.

Starfshlutfall: 25% starfshlutfall.

Starfsheiti: Félagsleg liðveisla I.

Lýsing á starfinu:  Starfsmaður starfar við frístunda- og félagslega aðstoð við fatlað fólk.  Einnig við að leiðbeina þjónustuþegum í daglegu lífi við að auka færni þeirra og sjálfstæði.

Hæfniskröfur: Leitað er eftir ábyrgðarfullum, jákvæðum og sveigjanlegum einstaklingum sem hafa áhuga á að starfa með fötluðu fólki. Lögð er áhersla á gagnkvæma virðingu, umhyggju, lipurð í mannlegum samskiptum, háttvísi og stundvísi. Þekking og reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur. Umsækjendur skulu hafa náð 18 ára aldri.

Vinnutími: Dagvinna.

Launakjör: Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við hlutaðeigandi stéttarfélag.

Umsóknarfrestur er til og með 2. apríl 2018

Nánari upplýsingar: Sigþrúður Jóna Harðardóttir, ráðgjafaþroskaþjálfi, sigthrudurh@skagafjordur.is, 455-6082.

Umsóknir: Umsóknum er greina frá menntun og fyrri störfum skal skilað í gegnum íbúagátt  sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.skagafjordur.is (laus störf). Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Karlar, sem og konur, eru hvattir til að sækja um.